Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hér er um að ræða hækkun upp á 19 þús. kr. sem verið er að gauka að því fólki sem mest má sín í samfélaginu. Ég tel að miklu nær hefði verið að hækka skattleysismörk um 19 þús. kr. þannig að sama fólk hefði notið þeirra 19 þús. kr. en líka allur almenningur í landinu. Því er ekki til að dreifa og svar mitt er nei.