Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Skúli Alexandersson) :
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur jöfnum höndum fjallað um þetta frv. og það frv. sem hér var til umræðu næst á undan, þ.e. 450. mál. Nefndin skiptist upp á sama hátt í afstöðu til þessa máls. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að þetta frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj.
    Meiri hl. skipa Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson, Guðrún J. Halldórsdóttir og Eiður Guðnason, en þau tvö síðastnefndu með fyrirvara.