Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. félmn. (Margrét Frímannsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1086 um frv. til laga um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, með síðari breytingum, frá félmn. þessarar deildar.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund til viðræðna um það Grétar Guðmundsson, aðstoðarmann félmrh. Mælir nefndin með samþykkt frv. með breytingum sem gerðar voru í meðförum Nd.
    Undir nál. skrifa auk frsm. Guðmundur H. Garðarsson, Jóhann Einvarðsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Jón Helgason, Karl Steinar Guðnason og Salome Þorkelsdóttir.