Lánsfjárlög 1991
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) :
    Herra forseti. Ég vísa til yfirlýsingar forsrh. í þessu máli og vilja ríkisstjórnarinnar að greiða fyrir því að verksmiðjan verði byggð á þessum stað, en vil hins vegar ítreka það að verksmiðja þessi verður ekki byggð í atkvæðagreiðslu hér á Alþingi, heldur fer það eftir þeim samningum sem nást við viðkomandi aðila og segi því nei.