Lánsfjárlög 1991
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Jóhann Einvarðsson :
    Hæstv. forseti. Eins og ég sagði áðan þá tel ég það ekki vera tímabært ennþá að fara að negla þetta niður meðan samningum er ekki lokið við þá erlendu aðila sem eru núna að láta gera hagkvæmnisúttekt á því hvar slík verksmiðja ætti að vera. Með tilliti til þess hvað hæstv. sjútvrh. sagði hér áðan, að þessi niðurstaða verður ekki ákveðin með atkvæðagreiðslu á Alþingi, segi ég nei.