Almannatryggingar
Miðvikudaginn 20. mars 1991


     Halldór Blöndal (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Ég veit að það var í góðu skyni gert sem meiri hl. deildarinnar vísaði málinu til ríkisstjórnarinnar. Meiri hl. þingdeildarinnar trúir því að ríkisstjórnin hafi betri leiðir til að ná þeim tilgangi fram sem í frv. stendur þannig að ég get út af fyrir sig sætt mig við þessa niðurstöðu.