Starfslok efri deildar
Miðvikudaginn 20. mars 1991


     Forseti (Jón Helgason) :
    Ég þakka hv. 6. þm. Reykn. kærlega fyrir góðar óskir í minn garð og hlý orð og hv. þingdeildarmönnum öllum fyrir að taka undir þau. Ég vil endurtaka árnaðaróskir til ykkar allra og ykkar fjölskyldna. Þá liggur ekki fleira fyrir þessum fundi. Fundinum er slitið.