Kristín Einarsdóttir :
    Virðulegur forseti. Með frv. þessu er lagt til að tekjutap loðnuflotans vegna aflabrests í loðnuveiðum verði bætt með tvennum hætti. Annars vegar að veita sjútvrh. tímabundna heimild til að ráðstafa til loðnuskipa að hluta eða að öllu leyti veiðiheimildum Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins, eða allt að 8000 þorskígildislestum. Hins vegar með því að úthluta tímabundið 5000 tonna viðbótarafla af úthafsrækju til loðnuflotans. Með frv. er því gerð tilraun til að mæta vanda loðnuflotans en ekki tekið á þeim atvinnuvanda og tekjumissi sem bæði landverkafólk og einstök byggðarlög standa frammi fyrir.
    Í lögum nr. 40 frá 15. maí 1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins, er markmiðið með stofnun sjóðsins skilgreint en þar segir í 1. gr., með leyfi forseta: ,,Að stuðla að aukinni hagkvæmni í útgerð og koma til aðstoðar byggðarlögum er standa höllum fæti vegna breytinga á útgerðarháttum.``
    Ég get tekið undir þetta markmið og minni á að þingkonur Kvennalistans hafa lagt áherslu á að tekið verði fyllsta tillit til byggðarsjónarmiða við mótun fiskveiðistefnunnar. Í samræmi við þá stefnu sína lögðu kvennalistakonur fram brtt. við frv. til laga um stjórn fiskveiða bæði á 110. löggjafarþingi og aftur er núgildandi lög voru afgreidd sl. vor.
    Með stofnun Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins örlar aðeins á viðurkenningu stjórnvalda á þeim sjónarmiðum Kvennalistans að nauðsynlegt sé að gera byggðarsjónarmiðum hærra undir höfði við úthlutun veiðiheimilda.
    Þegar frv. þetta var lagt fram höfðu skapast óvenjulegar aðstæður vegna aflabrests loðnuflotans og sá sjútvrh. ástæðu til að bregðast við vandanum með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir og hér hefur verið lýst fyrr í umræðunni. Með þessu frv. er veitt tímabundin heimild frá ákvæðum laganna um Hagræðingarsjóð, en þar segir m.a.: ,,Sjóðurinn skal koma til aðstoðar einstökum byggðarlögum með því að efla vinnslu sjávarfangs á þeim stöðum þar sem straumhvörf hafa orðið í atvinnulífi vegna sölu fiskiskipa.``
    Þingkonur Kvennalistans telja ekki rétt að veiðiheimildum Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins verði eingöngu úthlutað til flotans án þess að um leið sé reynt að leita leiða til að leysa vanda landverkafólks og byggðarlaga, eins og lögin kveða á um. Jafnframt teljum við óeðlilegt að sjútvrh. verði veitt heimild til að tæma Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins í þessu skyni og útiloka þar með að unnt reynist að taka á vanda einstakra byggðarlaga sem upp kann að koma á árinu.
    Í ljósi þessa sem hér hefur verið lýst og með hliðsjón af stefnu Kvennalistans í sjávarútvegsmálum höfum við þingkonur Kvennalistans hér í neðri deild lagt fram brtt. við þetta frv. sem felur í sér að sjútvrh. verði ekki heimilt að úthluta meira en 6000 þorskígildislestum úr Hagræðingarsjóði sjávarútvegsins og að þeim hlut verði úthlutað til byggðarlaga en ekki einstakra skipa.

    Þessi brtt. er á þskj. 988 og er við 1. gr. frv. og orðast svo, með leyfi forseta:
    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
    ,,Á fiskveiðitímabilinu 1. janúar til 31. ágúst 1991 er sjútvrh. heimilt að ákveða með reglugerð að allt að 6000 þorskígildislestum af aflaheimildum samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 40 15. maí 1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins, skuli ráðstafað án endurgjalds til þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir beinum tekjumissi vegna aflabrests á loðnu.
    Ráðherra skal skipta þessum heimildum í ákveðnu hlutfalli milli sveitarfélaga sem miðist við meðaltal landaðrar loðnu í viðkomandi sveitarfélagi síðastliðin þrjú ár.
    Skylt er að landa þeim afla, sem úthlutað er samkvæmt þessari heimild, til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi, sbr. ákvæði í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 40/1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.
    Sveitarstjórnir, sem fá úthlutað aflaheimildum samkvæmt þessari grein, skulu við ráðstöfun þeirra til skipa setja skilyrði sem miði að því að tryggja starfsfólki loðnuverksmiðja atvinnu við vinnslu aflans.``
    Þetta er brtt. sem við þingkonur Kvennalistans í neðri deild flytjum og er samhljóða þeirri brtt. sem þingkonur Kvennalistans í efri deild fluttu þegar þetta mál var til meðferðar þar. Hún hlaut því miður ekki stuðning en ég vænti þess að þegar fólk athugar málið geti það stutt þessa brtt. okkar.
    Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri en legg áherslu á að verði þessi brtt. samþykkt munum við þingkonur Kvennalistans styðja þetta frv., en sitja hjá við afgreiðslu málsins ella.