Lánsfjárlög 1991
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. þá yfirlýsingu sem hann hér gaf en til þess að enginn vafi sé á varðandi skilning á málinu vil ég inna hæstv. forsrh. eftir því hvort því megi treysta að á meðan ríkisstjórn hans situr verði ekki teknar ákvarðanir í þessu máli gegn vilja ráðherra flokkanna sem skipa ríkisstjórnina, þannig að allir flokkar verði samferða um veitingu heimilda.