Lánsfjárlög 1991
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Ásgeir Hannes Eiríksson :
    Virðulegi forseti. Hér er tekist á um það hvort þingheimur vill standa með einstaklingi í Reykjavík á sama hátt og trekk í trekk er staðið með einstaklingum, félögum og öðrum á landsbyggðinni þegar svipaðar aðstæður eru. Ég vil gera það. Ég vil standa með einstaklingum og þess vegna segi ég já.