Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Frsm. 1. minni hl. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1090 um frv. til laga um breytingar á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins frá 1. minni hl. félmn.
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund Sigurð E. Guðmundsson, Þráin Valdimarsson og Yngva Örn Kristinsson frá Húsnæðisstofnun ríkisins, Grétar Guðmundsson, aðstoðarmann félmrh., Ásmund Hilmarsson og Gylfa Guðmundsson frá Alþýðusambandi Íslands.
    Fyrsti minni hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Ed. Jón Kristjánsson áskilur sér rétt til að flytja eða styðja brtt. er fram kunna að koma.``
    Undir nál. rita Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Jón Kristjánsson.