Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Alexander Stefánsson :
    Herra forseti. Ég hef endurflutt á þskj. 1115 tillögu um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. Hún er við ákvæði til bráðabirgða I þar sem breytt er dagsetningu. Í fyrri brtt. var gert ráð fyrir að ákvæði eldri laga um Byggingarsjóð ríkisins héldi gildi sínu fram til 1. mars 1994. Ég legg til í tillögunni að þessi ákvæði eldri laga haldi gildi sínu til 1. mars 1992.