Starfslok neðri deildar
Þriðjudaginn 19. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Hv. þingdeildarmenn. Þetta verður síðasti fundur hv. þingdeildar á þessu þingi og raunar á þessu kjörtímabili einnig. Af því tilefni leyfi ég mér að þakka hv. þingdeildarmönnum öllum í senn og hverjum um sig fyrir samstarf við mig sem forseta deildarinnar, sem í öllu hefur verið mjög ánægjulegt. Ég þakka varaforsetum sérstaklega fyrir ágætt samstarf og góða liðveislu við mig og skrifurum veitta aðstoð sem er mjög mikilvæg. Skrifstofustjóra og starfsmönnum þingsins þakka ég þau ómetanlegu störf sem innt eru af hendi á þeirra vegum. Án framlags starfsliðsins væri þinghaldið ekki framkvæmanlegt. Allt þetta þakka e í lok þessa fundar, í lok þessa þings, í lok þessa kjörtímabils.
    Ég óska hv. þm. góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og flyt þeim óskir mínar um heillaríka framtíð.