Kosning í stjórnir og ráð
Miðvikudaginn 20. mars 1991


     Skúli Alexandersson :
    Virðulegi forseti. Hér fær þingheimur tilkynningu um það að minni hluti alþingismanna taki ákvörðun um að ekki fari að venjulegum þingsköpum og ekki fari fram þær kosningar sem tilkynntar eru á dagskrá. Ég tel þetta mjög vafasama aðgerð og mótmæli henni og tel að það eigi að bera slíkan úrskurð undir þingheim. Þetta sé ekki hægt að úrskurða í forsetastóli á þann máta sem hér er verið að gera.