Sjónvarpssendingar um gervihnetti
Fimmtudaginn 24. janúar 1991


     Flm. (Ingi Björn Albertsson) :
    Hæstv. forseti. Sjónvarpssendingar um gervihnetti eru vissulega tilefni mikillar umfjöllunar og umræðu þessa dagana. Ég tel hins vegar að það væri rangt af mér að fara út í þá umræðu hér og nú undir þessum dagskrárlið þar sem að síðan ég lagði þessa till. fram hefur þeirri reglugerð, sem ég hér vísa til og óska eftir breytingum á, verið breytt eða hún felld út. Þessi þáltill. á ekki lengur rétt á sér. Ég lýsi því hér með yfir að ég dreg hana til baka.