Ferill 22. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


113. löggjafarþing 1990–1991.
Nr. 12/113.

Þskj. 593  —  22. mál.


Þingsályktun

um skrifstofur heilbrigðismála í kjördæmum landsins.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa að komið verði á fót í kjördæmum landsins á næstu fjórum árum skrifstofum heilbrigðismála sem sinni m.a. verkefnum fyrir héraðslækna, heilbrigðismálaráð og Tryggingastofnun, svo og fjárhagslegri og faglegri áætlanagerð og eftirliti með heilbrigðisþjónustu á svæðinu.

Samþykkt á Alþingi 7. febrúar 1991.