Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá
upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.
1990--91. -- 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. --
77
. mál.
Nd.
733. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 25 22. maí 1975, um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir.
Frá meiri hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið umsagnir um það frá biskupi Íslands, Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga, Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Krossinum, Kvenfélagasambandi Íslands, Kvenréttindafélagi Íslands, landlækni, Lífsvon, Ljósmæðrafélagi Íslands, Hjúkrunarfélagi Íslands, læknadeild Háskóla Íslands, Prestafélagi Íslands og Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa.
Í umsögnum við frumvarpið koma fram allmargar athugasemdir og eru skoðanir mjög skiptar um hvort samþykkja eigi frumvarpið eða ekki. Eins eru skoðanir skiptar um hve miklar breytingar eigi að gera á frumvarpinu áður en það er samþykkt. Ljóst er að nefndin þarf að gera mjög nákvæma úttekt á lögum nr. 25/1975 ef hún á að afgreiða þetta frumvarp á yfirstandandi þingi, hvort sem mælt yrði með samþykkt þess eður ei. Með hliðsjón af því hversu skammur tími er til þinglausna og í trausti þess að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra láti fara fram endurskoðun laga nr. 25/1975 leggur meiri hl. nefndarinnar til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Geir H. Haarde var fjarverandi afgreiðslu málsins.
Alþingi, 26. febr. 1991.
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
form., frsm.
Ragnhildur Helgadóttir.
Hulda Jensdóttir.
Guðmundur G. Þórarinsson.