Þingsetning
Þriðjudaginn 14. maí 1991


     Aldursforseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Fundur er settur í efri deild Alþingis. Ég býð hv. þingdeildarmenn velkomna til starfa á þessu þingi, sem verður, ef fram fer sem horfir, í síðasta sinn sem til hennar er valið og henni kjörnir forsetar.
    Ég vil biðja hv. 3. þm. Norðurl. e. Valgerði Sverrisdóttur og hv. 3. þm. Austurl. Egil Jónsson, margreynda skrifara þessarar hv. deildar, að gegna skrifarastörfum þar til skrifarar hafa verið kjörnir.