Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Vegna þeirra tilmæla sem fram komu í máli hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar mun ég að sjálfsögðu koma á framfæri við utanrrh. þeim óskum sem þar komu fram. Ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir því að þinginu verði gerð grein fyrir því sem til tíðinda hefur dregið í þessum samningaviðræðum svo skjótt sem verða má og með þeim hætti sem heppilegastur er.