Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs og fer þá fram atkvæðagreiðsla um að kosningu til fastanefnda verði frestað, en til þess að svo megi verða þarf að leita afbrigða eins og áður hefur komið fram skv. 69. gr. þingskapa. ( Gripið fram í: Frestað hve lengi, forseti?) Það er ótiltekið. ( ÓÞÞ: Þetta stenst ekki samkvæmt lögum um utanríkismálanefnd.)