Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Góðir áheyrendur. Alþingi Íslendinga stendur nú á merkum tímamótum. Á undanförnum tveimur og hálfu ári hefur farið fram umfangsmikil breyting á öllu verklagi þingsins, starfsmannahaldi, fjárreiðum þess og eignum og þegar næsta þing kemur saman mun Alþingi væntanlega starfa í einni málstofu. Þessar umfangsmiklu breytingar hafa farið fram í góðu samstarfi við alla hv. þm. og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka það og einnig þeim fyrrv. hv. þm. sem nú eru horfnir af þingi og mál mitt kunna að heyra.
    Þessum staðreyndum hefur engum dottið í hug að mótmæla, enda blasa þær við hverjum manni sem í þetta hús kemur. Ástæða þess að um þær eru engin ósannindi höfð í frammi er trúlega sú að innri styrkur hins háa Alþingis nýtist landsmönnum fremur óbeint en beint og því engin hætta á að þeir sem að þessu verki stóðu njóti þess í atkvæðamagni í kosningum. Annað er hins vegar uppi á teningnum þegar verk fráfarandi ríkisstjórnar eru metin og gildir þá einu hver sú ríkisstjórn var. Þá er barist um hylli fjöldans og hvergi skeytt um heiðarleika í þeim málflutningi. Og það sem einkennilegra er, engin ráð eru fyrir því gerð að landsmenn viti e.t.v. betur og því síður er litið til óska þeirra þegar ný stefnuræða er flutt.
    Nú vill svo til að fyrir liggur ný skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskólans um þau áhersluatriði sem fólki eru efst í huga um þessar mundir og hvaða kröfur eru gerðar til hinnar nýju ríkisstjórnar. Það er ekki að heyra að hæstv. forsrh. hafi lagt eyrun við þeim niðurstöðum fólksins í landinu því að í hugum manna skipa umhverfismálin efsta sætið. Um þann málaflokk fann ég ekki orð í stefnuræðu þeirri sem hér var flutt, ekki orð, enda féll ráðuneyti umhverfismála átakalaust í hlut Alþfl.
    Jöfnun lífskjara skipar annað sæti en hæstv. forsrh. margítrekar í stefnuræðu sinni að ríkisstjórnin geti orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: ,,ekki hvers manns vanda leyst``, bara sumra. Hann ætlar að auka einkavæðingu, selja ríkisfyrirtæki og draga úr almannaþjónustu og segir sig sjálft á hverjum það bitnar. Skyldu það ekki vera þeir sem minnst mega sín að vanda?
    Í stefnuræðunni kemur hins vegar ekki fram hvar á að skera niður í samfélagsþjónustunni. Í heilbrigðiskerfinu, í skólakerfinu? Við vitum það ekki. Þó er boðað að breyting verði á tilhögun húsnæðislána en um það verður ekki rætt hér í kvöld vegna þess að skýrsla hæstv. fjmrh. um það efni verður lögð fram á morgun. Hún verður lögð fram daginn eftir að umræður um stefnuræðu fara fram og bið ég menn að taka eftir þessu. Það er slæmt að heyra ekki hæstv. félmrh. skýra þær aðgerðir hér í kvöld. Við heyrðum hins vegar í útvarpsfréttum og sjónvarpsfréttum í kvöld að hækka eigi vexti af húsnæðislánum. En íbúðakaupendur geta verið rólegir. Þeir fá hækkunina bætta síðla næsta árs og segir sig sjálft hver huggun það er fátæku fólki sem er að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið.

    Í skoðanakönnuninni umræddu biður fólk ekki um skattalækkun, ekki um skattalækkun sem hæstv. forsrh. er svo hugleikin. Fólk biður um hækkun skattleysismarka fyrir þá sem lægst launin hafa. Fólk biður ekki um skattalækkun fyrir alla. Það biður um aukna leikskólaþjónustu og öryggi fyrir börnin sín eftir að skóla lýkur. Um það áhersluatriði er ekki orð í stefnuræðu hæstv. forsrh. Áhersluatriði hans eru því órafjarri vilja fólksins í landinu. Fólkið í landinu vill áframhaldandi stöðugleika í efnahagsmálum svo að hjól atvinnuveganna stöðvist ekki á nýjan leik eins og þau gerðu síðla árs 1988. Og fólkið í landinu veit að síðustu ríkisstjórn tókst að gera það sem engri ríkisstjórn hefur tekist í áratugi, að eyða verðbólgunni. Henni tókst einnig að bæta viðskiptakjörin og þess vegna krefjast nú launþegasamtökin í landinu hækkaðra launa. Sú mynd sem dregin er af stöðu efnahagsmála í þessu dæmalausa plaggi, stefnuræðunni, er eins og lélegur skólastíll og minnir á tilsvar ungs laganema með kímnigáfu í nýútkomnu stúdentablaði, en hann er spurður í lok viðtals: ,,Og framtíðin?`` Svar: ,,Davíð Oddsson.`` Hvernig má það svo vera að hæstv. forsrh. og flokkur hans fær það kjörfylgi sem nægir honum til að véla Alþfl. til að mynda með sér ríkisstjórn? Jú, svarið er einfalt. Vinur litla mannsins, Borgfl. sálugi, fór aftur heim til flokksins sem hafði enga stefnu fram að færa fyrir kosningarnar og hefur ekki enn. Alþfl. fékk kjörfylgi sitt til þess að fyrrv. ríkisstjórn héldi áfram því starfi að þeim málefnum sem þjóðin óskar sér heitast, en það vill svo til að ef menn skoða kosningaplögg Alþb., þá voru einmitt þau málefni sem fólkið í landinu vill höfuðáhersluatriði Alþb. í þessum kosningum. Gallinn er bara sá að hin nýja ríkisstjórn hefur engan áhuga á þeim ef marka má stefnuræðuna. En hin nýja ríkisstjórn er staðreynd og ég tek auðvitað undir það að henni óska ég þjóðarinnar vegna alls hins besta. En það tókst að blekkja kjósendur.
    Við getum aðeins horft forviða á þá hv. þm. sem fegurstu draumana höfðu um öflugan flokk jafnaðarmanna og félagshyggjufólks, andstæðinga hringamyndunar og flutnings fjármagns á æ færri hendur í þjóðfélagi okkar, þá sem skrifuðu langar greinar um kolkrabbann sem teygir klærnar um allt samfélagið og eirir engu. Hvar er samviska þeirra stödd? Og kolkrabbinn er samur við sig. Veit formaður þingflokks Alþfl., hv. þm. Össur Skarphéðinsson, hverjum hæstv. landbrh. fól að gera úttekt á stöðu fiskeldis í landinu þó að nýleg úttekt lægi fyrir? Úttekt á þessu hjartabarni hv. þm. Einhvern tíma hefði hv. þm. farið nokkrum orðum um frænda hæstv. landbrh. og tekið upp í sig, en það gerir hann ekki lengur.
    Nú er Alþfl. líka reiðubúinn að fórna þjóðarsátt um hagsmuni fólks og fyrirtækja með vaxtahækkun til þess að styrkja einkahagsmuni lítils hluta þjóðarinnar á kostnað fólksins sem fjárins aflar. Ríkisstjórnin aðhyllist þau vestrænu viðhorf í atvinnumálum sem best hafa dugað þjóðum hins frjálsa heims, og er þá orðrétt vitnað til stefnuræðu. Skyldi sú atvinnustefna bera í sér þær milljónir atvinnulausra sem byggja þessi

frjálsu ríki? Ég ætlast ekki til svars. Skyldi sú atvinnustefna líka bera í sér þær milljónir atvinnulausra í Bandaríkjum Norður - Ameríku þar sem þjóðin býr nú við 20% ólæsi? Er það vestræn atvinnustefna sem hentar íslenskri þjóð? Ég ætlast ekki til svars.
    En að þessu sögðu hlýt ég að efast um hæfni þessarar hæstv. ríkisstjórnar til að fjalla um stöðu Íslands í nýrri Evrópu. Íslendingar hljóta að þurfa að stíga hvert skref í viðræðum um Evrópskt efnahagssvæði af mikilli varúð svo að við festumst ekki í Evrópubandalaginu áður en við fáum við ráðið.
    Hugmyndin um evrópska efnahagssamvinnu og Evrópubandalag er upphaflega byggð á hagræðingu á tilflutningi fjármagns. Hún er fólgin í því að gera stóru fyrirtækin stærri á kostnað hinna minni. Hún snýst fyrst og síðast um óheftan flutning vöru og vinnuafls, þjónustu og fjármagns milli aðildarríkjanna. En hún snýst líka um mótun sameiginlegrar efnahagsstefnu hinna einstöku ríkja og þar með ákveðið framsal á sjálfsforræði aðildarríkjanna. Við ákvarðanatöku um aðild að þessari samvinnu skal á það bent að norræn samvinna byggðist aldrei á hagsmunum í heimi stórfyrirtækja og viðskipta heldur á hagsmunum hvers einstaks íbúa í daglegu lífi. Hún byggist á mennt og menningu og sameiginlegum hagsmunum í þjóðlegri tilvist og andlegri reisn og ótvíræðu sjálfsforræði hinna einstöku þjóða. Efnahagsbandalagslöndin eiga langan veg ófarinn til að ná því velferðarstigi sem við búum við á Norðurlöndum. Í öllum viðskiptum við bandalag Evrópuríkja verður að stíga hvert skref af varkárni og ég treysti ekki þessari ríkisstjórn fyrir því verkefni. Það er ekki að sjá að Danir hafi efnast á veru sinni í Efnahagsbandalaginu, en þar ganga nú 300 þús. manns atvinnulausir. Sex og átta akbrauta Evrópuvegir eru fyrir fjármagn en ekki fólk.
    Hæstv. forseti. Ég er rétt að ljúka máli mínu. Kjörnir fulltrúar þjóðarinnar á hinu háa Alþingi eiga fram undan erfiða ákvarðanatöku sem hafa mun afgerandi áhrif á framtíð okkar allra. Kæruleysi og léttúð við gerð stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er óvirðing við fólkið í landinu og þjóðhagslega hættuleg. Það er ekki verkefni okkar að fara með rangar staðreyndir og stóryrði hvert um annað, eins og hæstv. heilbrrh. hafði hér t.d. í frammi áðan, og blekkingar um stöðu þjóðarbúsins. Verkefni okkar er að skýra og skilgreina raunverulega stöðu þess og lýsa mönnum inn í framtíðina með það eitt að leiðarljósi að hér í landi megi þrífast gott og heilbrigt mannlíf sem allir eiga aðgang að. Í stefnuræðu hæstv. ríkisstjórnar er enga slíka framtíðarsýn að finna, því miður. --- Ég þakka áheyrnina.