Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en forseti gefur fleirum orðið um þingsköp vill hann minna hv. 8. þm. Reykn. á það að hann hefur nú þegar talað tvisvar í þessari umræðu og þar af leiðandi á hann ekki möguleika á að tala oftar í þessari umferð. Hins vegar er hægt að benda hv. þingmönnum á það að hér hefur umræðan þó nokkuð tengst fyrsta dagskrármálinu, þ.e. ríkisfjármálum, og það á eftir að taka þá skýrslu til umræðu. Þá geta menn væntanlega á svipaðan hátt tengt umræðuna inn á þann dagskrárlið þegar þar að kemur.