Þingsköp Alþingis
Þriðjudaginn 28. maí 1991


     Forseti (Matthías Bjarnason) :
    Áður en gengið verður til atkvæða vil ég geta þess að það var ætlun forseta að ljúka einnig 3. umr. um þetta dagskrármál hér í dag og taka síðan fyrir 3. fundinn, 1. umr. um stjórnarskipunarlög. En nú hefur komið fram ósk um það frá formanni nefndarinnar að það líði hálf klukkustund á milli funda, áður en þetta mál verði tekið til 3. umr. og verður orðið við þeirri ósk.