Þingsköp Alþingis
Þriðjudaginn 28. maí 1991


     Guðni Ágústsson :
    Hæstv. forseti. Hér er verið að möndla með framtíðarþingsköp Alþingis til þess að halda sátt á milli sundurleitra stjórnarflokka. Hér er augsýnilega verið að færa Alþfl. tvo menn inn í fjvn. Ég tel að þetta sé slæm aðferð á þessu þingi. Ég vara þingmenn við þessum vinnubrögðum. Við verðum að hafa framtíðina í huga er við sníðum Alþingi þingsköp, vinna af heiðarleika en það séu ekki hér höfð í frammi í svo mikilvægu máli hrossakaup. Ég segi því nei.