Starfslok efri deildar
Föstudaginn 31. maí 1991


     Forseti (Karl Steinar Guðnason) :
    Ég þakka hv. 15. þm. Reykv. fyrir góðar óskir og hlýjar í minn garð og minnar fjölskyldu og hv. þingdeildarmönnum fyrir að taka undir þær óskir. Ég ítreka heillaóskir til ykkar allra.
    Fleira liggur ekki fyrir þessum fundi. Síðasta fundi efri deildar er slitið.