Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Vegna þessarar fyrirspurnar hv. 2. þm. Vestf. til forseta um hennar hugleiðslu um ákveðin mál getur hún svarað því til að hún hefur vissulega hugleitt hvenær þessi umræða mætti fara fram, en eins og á stendur nú er forseta þröngur stakkur skorinn með mál sem tekin verða til umræðu þessa daga þar sem samið var um að ræða ákveðin frumvörp. Það er því ljóst að ekki getur orðið um það að ræða að taka byggðamálin til umræðu þessa dagana sem við erum að ljúka umræðum um þau mál sem samið var um að afgreiða á fyrstu dögum á nýju ári. En strax þegar þing kemur saman, eftir að gert hefur verið hlé, sem verður væntanlega í byrjun febrúar, vill forseti gjarnan taka þetta mál upp til alvarlegrar íhugunar og geta þá svarað því og dagsett hvenær málið megi koma til umræðu. Og væntir forseti að hv. 2. þm. Vestf. taki þetta svar gott og gilt þó kannski sé það ekki mjög tímasett.