Ingi Björn Albertsson
:
Hæstv. forseti. Ég get vel tekið undir þær óskir sem fram hafa komið hjá tveimur hv. stjórnarandstæðingum um að umræðu um þetta mál verði frestað þar sem það er enn til vinnslu í nefnd. En það er ekki þess vegna sem ég kveð mér hljóðs um þingsköp. Það er vegna þess samkomulags sem gert var milli stjórnar og stjórnarandstöðu áður en þingið fór í jólafrí og gert var um þá viku sem nú stendur yfir.
Þannig er mál með vexti að ég bjó mig undir að mæta á fundi í morgun á reglubundnum fundartíma hjá allshn., kl. 8.15, og fór sérstaklega fram á það ítrekað í gær að sá fundur yrði haldinn, en við þeirri ósk var ekki orðið og fundurinn var afboðaður. Sú afboðun var rökstudd á þann veg að það hefði verið hluti af samkomulagi, sem stjórnarandstaðan og stjórnarflokkar hefðu gert, að hér yrðu aðeins fundir í þeim nefndum sem þau mál sem nú eru á dagskrá heyra undir.
Ég heyri annað úr herbúðum stjórnarandstöðunnar, að slíkt samkomulag hafi alls ekki verið gert og að nefndir þingsins ættu að starfa eðlilega sem áður.
Til þess að fá þessi mál á hreint óska ég eftir því að hæstv. forseti útskýri fyrir þinginu í hverju samkomulagið felst, hvort það er raunverulega meiningin að almenn nefndarstörf falli niður eða ekki.
Í framhaldi af því bendi ég á að bæði landbn. og utanrmn. hafa verið að halda fundi þannig að það lítur ekki út fyrir að alls kostar séu rétt þau rök sem voru færð fyrir því að hv. allshn. fékk ekki að halda fund.
Ég óska því eftir því, hæstv. forseti, að það verði útskýrt úr forsetastól í hverju samkomulagið fólst.