Virðulegi forseti. Ég sé mig knúinn til að leiðrétta það sem ég tel að hljóti að vera misskilningur hjá hv. 2. þm. Suðurl. þar sem hann var að ræða um fúkalyf í búvörum og hefur eftir yfirdýralækni. Ég hef undir höndum bréf frá yfirdýralækni þar sem hann er að fjalla um hugsanlegar heilbrigðisreglugerðir GATT og þar segir m.a., með leyfi forseta:
,,Í væntanlegum heilbrigðisreglum GATT munu aðilar geta sett heilbrigðisreglur um innflutning landbúnaðarafurða til að verja heilbrigðisástand manna, dýra og plantna viðkomandi lands og þessar reglur skulu byggðar á vísindalegum niðurstöðum. Aðilum má ekki setja strangari reglur milli landa sem hafa sama heilbrigðisástand þar sem slíkt mundi
álitið viðskiptahindrun.``
Og enn fremur segir: ,,Í reglum GATT mun þess krafist að rannsókn hafi leitt í ljós að ákveðnir sjúkdómar séu ekki fyrir hendi í landinu áður en reglur eru settar til að hindra að slíkur sjúkdómur berist með öðrum til landsins. Sambærilegar reglur munu gilda um innihald aðskotaefna í afurðum, að niðurstöður verða að liggja fyrir um hreinleika þeirra áður en bann við innflutningi kemur til.``
Þegar talað er um aðskotaefni í þessu sambandi er verið að tala um hormónalyf og fúkalyf og önnur efni eins og eiturefni sem dýrum hefur verið gefið eða þau hafa hugsanlega getað komist í snertingu við.