Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

62. fundur
Miðvikudaginn 08. janúar 1992, kl. 15:05:00 (2592)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
     Enn vill forseti upplýsa að hingað til hefur hann, sá er nú situr á forsetastól, leitast við að stjórna fundi samkvæmt þingsköpum eins og textinn hljóðar. Ef ágreiningur er um það hvernig túlka beri einstakar greinar sem kunna að vera óljósar er sjálfsagt og réttmætt að taka það til umræðu í forsætisnefnd. Hingað til hefur forseti talið að þessi setning gæti tæpast ljósari og skýrari verið en ef hann er einn um þá skoðun þá er rétt að hann taki það upp í forsætisnefnd og spyrjist frekar um það hvort önnur hefð hafi skapast um þetta efni.