Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

62. fundur
Miðvikudaginn 08. janúar 1992, kl. 15:12:00 (2598)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (um þingsköp) :
     Herra forseti. Vegna þeirra athugasemda sem hér koma fram af hálfu hv. 5. þm. Vestf. er rétt að taka fram að stjfrv. um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins var lagt fram með stjórnskipulega réttum hætti. Þegar það var tekið á dagskrá voru engar athugasemdir um það gerðar. Ef einhver þingmaður hefði talið efni til þess að frv. hefði ekki verið lagt fram á stjórnskipulegan réttan hátt, þá var eðlilegt að gera um það athugasemd þegar málið var tekið á dagskrá. Enginn þingmaður gerði athugasemd við að málið væri tekið á dagskrá og þess vegna eru athugasemdir af því tagi sem hv. 5. þm. Vestf. gerir algjörlega út í hött.