Frsm. minni hluta sjútvn. (Halldór Ásgrímsson)
(andsvar)
:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir þessi svör. Hann staðfesti að a.m.k. enn sem komið er væri ekki samkomulag um frekari skref í þessu máli en staðfesti það að hann liti svo á að hér væri um fyrsta vísi að nýju veiðileyfagjaldi að ræða eða tók a.m.k. ekki þau orð til baka. Þar með hefur hann í reynd staðfest þá gagnrýni sem við höfum haft í stjórnarandstöðunni að hér er um að ræða breytingu á fiskveiðistefnunni. Verið er að breyta veigamiklum atriðum sem snerta fiskveiðistefnuna að því er varðar hlutverk sjóðsins í sambandi við byggðamál, að því er varðar úreldingarhlutverk sjóðsins og að því er varðar gjaldtöku af veiðiréttindum til sameiginlegra útgjalda þjóðarinnar. Þetta eru engin smámál, hæstv. utanrrh., og þar af leiðandi á ekki að líta á þau svona léttilega úr samhengi við aðra þætti málsins. Ef hæstv. ríkisstjórn er eitthvað umhugað um að ná sem bestri samstöðu um málið þá ætti hún að viðurkenna það og draga málið til baka. En það er alveg sama hvað er sagt við hæstv. ríkisstjórn, hvort sem það er í þessu máli eða um hina nýju fjárhaldsmenn stofnana samfélagsins, sem stendur til að setja á ef ástæður þykja til, að ekki er tekið tillit til nokkurrar gagnrýni. Það skal haldið áfram á þeirri braut sem mörkuð var hinum megin við Viðeyjarsund hvað svo sem hver segir. Þetta finnst mér alvarlegt og hæstv. utanrrh. til vissrar minnkunar, ég tala nú ekki um forsrh., en að öðru leyti þakka ég honum svörin.