Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umræður en vegna atriðis sem kom fram í máli mínu fyrr í dag er ekki hægt að ljúka þessari umræðu án þess að fá svör við því. Það er varðandi þá endurskoðun sem hefur farið fram á lagabálkinum um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins. Komið er fram frv. um að gerbreyta hlutverki hans. Það er skýrt tekið fram í bráðabirgðaákvæði, sem er í lögunum sjálfum, að við endurskoðunina eigi að hafa samráð við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og sjútvn. Alþingis. Þetta hefur ekki verið gert og ég spyr þess vegna forseta þingsins að því hvort Alþingi ætlar að láta þetta yfir sig ganga, hvort forsætisnefnd Alþingis ætlar að þegja þunnu hljóði þó að brotin séu lög með þessum hætti á Alþingi sjálfu. Hvort ekki eigi einu sinni að fá álit lögfróðra manna á því hvort svo hafi verið gert, svo ég gangi nú ekki lengra. Þetta er að sjálfsögðu brot vegna þess að ef reiknað hefði verið með að þetta mál gengi fram með venjulegum hætti og samráð haft við sjávarútvegsnefndir Alþingis í meðferð frv., hefði þetta að sjálfsögðu ekki verið tekið fram. Auðvitað var þetta á undirbúningsstigi. Þess vegna spyr ég hæstv. forseta og vona að ég fái við því svar áður en þessari umræðu lýkur hvort þessi vinnubrögð framkvæmdarvaldsins eigi að ganga yfir Alþingi með þessum hætti og hvaða fordæmi þetta
hafi í för með sér. Auðvitað koma þessi ákvæði inn vegna þess að Alþingi vill hafa hönd í bagga með þessari endurskoðun. Það er orðið dálítið þreytandi að samþykkja hér lög árið út og árið inn sem menn reyna að komast hjá að fara eftir í lengstu lög. Þess vegna vil ég hnykkja á þessari spurningu áður en umræðunni lýkur.
Ef hv. þm. hafa haldið að ég færi hér upp í ræðustólinn til þess að ástunda eitthvert málþóf, þá er það misskilngingur vegna þess að ég ætla ekki að halda lengri ræðu. En mér finnst þetta mikið alvörumál sem ég vil fá svar við áður en þessari umræðu lýkur sem verður væntanlega innan tíðar.