Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

65. fundur
Mánudaginn 13. janúar 1992, kl. 14:03:00 (2673)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti vill benda á að það er ekki búið að samþykkja þetta frv. sem lög þó að 2. umr. ljúki nú. Það er eftir að afgreiða málið við 3. umr. og þess vegna mun forseti láta atkvæðagreiðslu fara hér fram um það hvort hv. þm. eru tilbúnir að samþykkja að málinu verði vísað til 3. umr. En það gefst væntanlega tækifæri fyrir hv. þm. að kynna sér það sem þeir eru hér að ræða um og benda á og vilja fá að kanna betur á milli 2. og 3. umr.