Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Þrátt fyrir að þingmaður sé sannfærður um að rétt var upp lesið hjá hæstv. heilbrrh., að sú regla er í þingsköpum að fyrst eigi að greiða atkvæði um einstakar greinar frv. við 2. umr. og síðan að vísa þeim til 3. umr., ef samkomulag er um, en ekki öfugt, þá breytir það ekki því að í mörg lagafrumvörp hefur verið sett inn ákvæði um endurskoðun. Það hefur verið gert til þess að reyna að sætta menn við það að ef vankantar kæmu fram á lagasmíð væri tryggt að endurskoðun ætti sér stað með fullu samráði. Nú er verið að leggja til að þetta samráð verði tekið út og í reynd er þingið að fella úr gildi lagatexta í ýmsum lögum þar sem ákvæði um samráð er inni. Ekki vil ég deila við hæstv. sjútvrh. um það að sú túlkun hans á frelsi manna til að flytja hér brtt. við lög fái ekki staðist. Aftur á móti finnst mér sú vinnuregla skynsamleg að hafa samráð við hagsmunaaðila þegar breytingar eru gerðar á lögum og í ljósi þess að lögin hafa ekki verið virt hvað þetta varðar segi ég nei.