Sala Skipaútgerðar ríkisins og þjónusta við landsbyggðina

67. fundur
Miðvikudaginn 15. janúar 1992, kl. 18:00:00 (2744)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Áður en gengið er til dagskrár að nýju fer fram umræða utan dagskrár um sölu á Skipaútgerð ríkisins og þjónustu við landsbyggðina. Sú umræða er að beiðni hv. 5. þm. Vestf. og fer fram skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga sem þýðir að hún má standa í allt að hálftíma.