Sala Skipaútgerðar ríkisins og þjónusta við landsbyggðina

67. fundur
Miðvikudaginn 15. janúar 1992, kl. 18:42:00 (2764)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Það hefur komið skýrt fram í máli hv. þm. sem hafa talað um gæslu þingskapa að ýmsar leiðir eru til að taka þetta mál til umræðu, m.a. innan samgn. Formaður samgn. er á fundinum svo að væntanlega hefur komist vel til skila að það eru aðrir möguleikar en þessi hálftíma umræða sem fór fram utan dagskrár.