Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal)
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Það er nauðsynlegt að það komi fram að ég átti fund með stjórnarnefnd og við Geir Gunnarsson höfum talað um stöðu Skipaútgerðar ríkisins. Nauðsynlegt er að það komi líka fram að formaður stjórnarnefndar hefur átt fund með Geir Gunnarssyni og talað við hann utan fundar. Af því samhengi sem ég hlustaði á í ræðu hv. þm. geri ég mér ekki grein fyrir að hverju hann var að ýja en ég mun að sjálfsögðu hafa samband við Geir Gunnarsson og spyrja hann um það hvort hann telji að hann hafi verið leyndur upplýsingum eða ekki verið látinn fylgjast nægilega vel með gangi þessa máls.