Framkvæmdasjóður Íslands

69. fundur
Föstudaginn 17. janúar 1992, kl. 12:47:00 (2828)

     Forseti (Björn Bjarnason) :
     Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs og er þessari umræðu lokið. Forseti mun taka tillit til þeirra óska sem fram komu í ræðu hv. 8. þm. Reykn. varðandi atkvæðagreiðslu um þetta mál. Það er náttúrlega undir efh.- og viðskn. þingsins komið hvað hún gerir og forseti getur ekki gefið fyrirmæli um það. En forseti væntir þess að hv. þm. muni láta sín sjónarmið þar í ljós við sína fulltrúa í þeirri nefnd.