Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

69. fundur
Föstudaginn 17. janúar 1992, kl. 17:48:00 (2850)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (um þingsköp) :
     Herra forseti. Ég vil ekki sitja undir því enda eru það ósannindi að ég hafi verið frá svo tímunum skipti. Ég fór í burtu með samkomulagi við þann ræðumann sem var að tala, Halldór Ásgrímsson 1. þm. Austurl., og sat núna, að beiðni forseta, fund með formönnum þingflokka og heyrði þar í hátalaranum þessi ósannindi þingmannsins.