Páll Pétursson
(um þingsköp)
:
Frú forseti. Bara út af orðum hæstv. forsrh. áðan. Hugmyndin um eftirlitsmenn, eins og sett fram upphaflega af núv. ríkisstjórn, er gjörólík þeirri hugmynd sem hæstv. forsrh. var að reyna að klína upp á síðustu ríkisstjórn. Það er bein sögufölsun að telja hugmyndina þaðan komna og hreinir útúrsnúningar. Starfssvið þessara manna var allt öðruvísi hugsað og meginatriðið er að hér var um að ræða heildarlöggjöf um Stjórnarráð Íslands, sem samin var af nefnd, ekki tekin afstaða til þess í ríkisstjórn, en ákveðið að leggja málið fram til kynningar. Ég get sagt frá því að það voru efasemdir og andstaða við ýmis atriði í því frv. í þingflokki framsóknarmanna þannig að ef til þess hefði komið að lögfesta hefði átt þetta frv. þurfti að breyta því í ýmsum atriðum.
Varðandi hlutverk stjórnarandstöðu í borgarstjórn, sem hæstv. forsrh. kom aðeins inn á, hefði nú betur farið ef hæstv. forsrh. og þá borgarstjóri hefði tekið meira mark á skynsamlegum leiðbeiningum stjórnarandstöðu. Og það vona ég að við getum kennt honum hér í þinginu. Það hefði farið betur hjá Reykjavíkurborg ef hlustað hefði verið meira á stjórnarandstöðu þar í borginni. Hún hefur að vísu ekki þann ,,status`` sem þessir ,,bífalningsmenn`` ríkisstjórnarinnar eiga að hafa. Borgarendurskoðandi komst kannski aðeins nær því að hafa þann ,,status`` og hann fékk nú heldur bágt fyrir þegar hann sýndi fram á hvað gerst hefði. Þá var hæstv. forsrh. ekkert sérstaklega ánægður með borgarendurskoðandann, þennan mann sem komst þó næst því að hafa ,,status`` tilsjónarmanns.