Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

70. fundur
Mánudaginn 20. janúar 1992, kl. 14:23:00 (2888)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
     Hæstv. forseti. Ég vona að af því geti orðið að síðar á þessu þingi verði umræða um stefnu í skólamálum. Það er að fara í fullan gang endurskoðun á grunnskólalögunum og ég geri mér vonir um að frv. verði lagt fram á þessu þingi án þess að ég geti fullyrt um það. Þá fáum við tækifæri til að ræða þessi mál í miklu víðara samhengi.