Kristinn H. Gunnarsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hér var nokkuð athyglisverð ræða flutt af hálfu eins stjórnarliðans, eins af þeim fáu sem fær að tala í þinginu. Eins og við stjórnarandstæðingar höfum tekið eftir eru stjórnarliðar greinilega ekki frjálsir að því að láta skoðanir sínar í ljós í umræðum og hafa það helst hlutverka að vera í bakherbergjum, vera bakstuðningur við ráðherrana.
Það sem mér þótti athyglisvert er að hér kom skýrlega fram að áform ríkisstjórnarinnar varðandi tannlækningar eru aukin miðstýring, ganga gegn einkavæðingunni. Þetta er nefnilega í samræmi við margt af því sem við sjáum í frv. sem er til umræðu, að það er þátt eftir þátt verið að færa valdið frá þinginu yfir til ráðherranna, auka miðstýringarvaldið. Það sjáum við í skólamálum, það sjáum við í heilbrigðismálum og það sjáum við í öllum ráðuneytum í formi launakostnaðar sem færður er að hluta til sem ráðstöfunarfé ráðherra en ekki kostnaður í viðkomandi stofnun. Þannig má halda áfram. Hér er greinilega á ferðinni mikil miðstýringarríkisstjórn og Sjálfstfl. er þrátt fyrir það sem hann segir ekkert annað en miðstýringarflokkur, miðstýringarflokkur Íslands númer eitt sem einna helst stendur undir því að verða jafnað við þá flokka sem ríktu fyrir austan járntjald, það tjald sem hrundi fyrir skömmu.
Þetta vildi ég að kæmi fram, virðulegi forseti, m.a. vegna þeirrar áherslu sem hæsv. fjmrh. hefur lagt á hið gagnstæða í þessum málum.