Fjarvist þingmanns

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 11:37:00 (2934)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Aðeins til upplýsingar fyrir hv. 8. þm. Reykv. þá er það hæstv. forseti sem heldur stundaskrá yfir fjarvistir þingmanna. Það hefur verið allan þann tíma sem hv. 8. þm. Reykv. hefur verið hér á þingi og ekki orðið breyting á. Ég hef ekki tekið að mér það starf. En ég skil það vel að hann telji skynsamlegt að gleyma sumum hlutum og ég mun ekki virða honum það á verri veginn. --- [Fundarhlé.]