Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 12:26:00 (2936)

     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Hér er um að ræða að fresta enn máltíðum fyrir börn í grunnskólum sem bæði ég og aðrir hv. þm., nægir að nefna núv. hæstv. félmrh., núv. hæstv. forseta þessa þings og fjölmarga aðra, hafa barist fyrir. Ég segi að sjálfsögðu nei.