Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 13:34:00 (2964)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegi forseti. Í öllum þeim stóru orðum sem hér hafa fallið hefur því ekki verið mótmælt að ég hafi vitnað í réttar upplýsingar um frv. hæstv. fyrrv. heilbrrh. Það sem ég hef gert er það eitt að rifja upp fyrir flm. þess frv. hvað í því stóð og það er auðvitað auðheyrt að þeim sárnar það. En það verður þá bara svo að vera því að sannleikanum er hver sárreiðastur.