Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 13:41:00 (2968)

     Svavar Gestsson :
    Hæstv. forseti. Með þessari tillögu er hæstv. heilbr.- og trmrh. Sighvatur Björgvinsson að leggja það til að leggja sérstakan aukaskatt á öryrkja umfram alla aðra landsmenn á sama tíma og hans ríkisstjórn hefur neitað að leggja hátekjuskatt á hátekjumenn og fjármagnstekjuskatt á fjármagnseigendur. Að sjálfsögðu hljótum við að mótmæla þessu. Ég segi nei, virðulegi forseti.