Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson)
(um atkvæðagreiðslu)
:
Virðulegi forseti. Vegna þeirrar efnislegu umræðu sem hefur hér orðið við atkvæðagreiðsluna sem hv. þm. mótmæltu að ætti sér stað, þá vildi ég gjarnan upplýsa að það er rétt að í frv. fyrrv. heilbrrh., sem flokkur hans væntanlega stóð að, var gert ráð fyrir um 14% hækkun á grunnlífeyri örorkulífeyrisþega og 14% hækkun á tekjutryggingu. En það var líka gert ráð fyrir því að skerða grunnlífeyri með nákvæmlega sömu aðferðum og hér er gerð tillaga um að öðru leyti en því að það var gert ráð fyrir því að hefja skerðingu grunnlífeyris við nokkuð lægri atvinnutekjur en hér er gerð tillaga um og að grunnlífeyrir örorkulífeyrisþega yrði að fullu skertur við mun lægri atvinnutekjur en hér er gerð tillaga um. Meðferð skerðingar á grunnlífeyri sjómanna var í frv. fyrrv. ráðherra með nákvæmlega sama hætti og hér er gerð tillaga um.