Hæstv. forseti. Út af fyrir sig er það rétt hjá hæstv. fjmrh. að við talsverðan vanda er að etja. En hann nefndi tvær spár, annars vegar spána sem lá fyrir sl. sumar og hins vegar spána sem er að birtast um þessar mundir. En fyrir nokkrum vikum var birt spá sem gerði ráð fyrir enn þá verri þjóðartekjum á þessu ári en nú er verið að tala um og á grundvelli þeirrar spár byggði ríkisstjórnin frv. sitt til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Með öðrum orðum, frv. um niðurskurðinn er byggt á svartari spám, verri spám, lakari þjóðartekjum, verri viðskiptakjörum en þeim sem við stöndum frammi fyrir í dag án þess að ég sé út af fyrir sig að gera lítið úr hinum almenna vanda sem um er að ræða. Þegar sú staðreynd liggur fyrir eiga menn auðvitað ekki að fara í hlutina eins og hæstv. ríkisstjórn heldur eiga þeir að draga úr þessum niðurskurði og sækja fjármuni til fjármagnseigenda og hátekjumanna í þjóðfélaginu.
Lánsfjárlög 1992
71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 15:44:00 (2986)
Svavar Gestsson
(andsvar)
: