Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 19:49:00 (3022)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
     Frú forseti. Af andsvari hv. 5. þm. Vestf. má ráða að honum hefði farið betur að

taka ábendingu minni þegjandi um þetta efni. Hagræðingarsjóðurinn hét líka Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins þegar fyrri ríkisstjórn hleypti þessum sjóði af stokkunum. Þar á hefur ekki orðið nein breyting og ekki tilefni til nýrra gagnályktana vegna þessa frv. fremur en þegar flokkur hans stóð að samningu þessa frv. og samþykkt þess hér á Alþingi í upphafi. Fyrri ummæli mín um þetta efni standa því óhögguð.