Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 20:22:00 (3027)

     Stefán Guðmundsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Mér sýnist að þessi umræða hafi tekið nokkuð skyndilega nýja stefnu og menn hljóti að eiga eftir að leggja hér nokkur fleiri orð í belg en þeir reiknuðu með fyrir örskammri stund síðan. Því langar mig til þess að spyrja virðulegan forseta að því hvernig hann hugsar sér að þessi mál gangi fram í kvöld, hvort ekki eigi að gefa hér matarhlé. Ég hef áhuga fyrir að fá að vita um það. Ég á a.m.k. eftir að segja hér nokkur orð í viðbót og ég trúi því að svo sé um fleiri.